news

Foreldrakaffi og mislitir sokkar á föstudaginn

21 Mar 2023

Kæru foreldrar!



Á föstudaginn verður foreldrakaffi samkvæmt skóladagatali, sjá hér efst á síðunni. Við hefjum leika klukkan 14:30 og verður eitthvað gómsætt í boði fyrir foreldra sem börn og starfsmenn undirbúa í sameiningu.



Sama dag verður mislitur sokkadagur í tilefni af alþjóðlegum degi Downsheilkennisins sem reyndar er í dag en við fögnum honum á föstudaginn.



Við hlökkum til að sjá sem flesta foreldra í foreldrakaffinu og einnig sem flesta í mislitum sokkum á föstudaginn.



Bestu kveðjur,
stýrurnar á Heklukoti