Skipulagsdagur 31.janúar
19 Jan 2022
Kæru foreldrar!
Við viljum minna á skipulagsdag þann 31.janúar næst komandi, sjá skóladagatal. Þann dag verða börnin í fríi og starfsfólkið á fyrirlestrum, fundum og í fræðsluöflun ýmiskonar.
Einnig hafa orðið breytingar í starfsmannahópnum. Eva Mjöll hefur hætt störfum og við óskum henni góðs gengis á nýjum stað. Einng hafa 2 starfsmenn bæst við hópinn, það eru Katrín og Jammy og vinna þær báðar á Lundakoti.
Samkvæmt skóladagatali ættu að vera 2 uppákomur nú í janúar, bíódagur og þorrablót, en ákveðið hefur verið að fresta þeim þar til síðar.
Annars er allt í eins góðu gengi og hægt er á þessum tímum, vonum að það haldist þannig.
Bestu kveðjur,
stýrurnar