Velkomin í leikskólann

Leikskólinn Heklukot tók fyrst til starfa sumarið 1974 og var þá rekinn af kvenfélagi Oddakirkju sem starfrækti leikskólann á sumrin. Haustið 1976 tók Rangárvallahreppur við rekstrinum þar til í júní 2002 að Rangárþing ytra tók við.

Í nóvember 1989 fluttist leikskólinn að Útskálum 2 og voru deildirnar þá tvær; Bangsadeild og Fíladeild.

1. nóvember 2006 opnaði þriðja deildin; Trölladeild, að Útskálum 1 og 1. október 2007 opnaði fjórða deildin; Gljábær, í Þykkvabæ þar sem áður var rekinn grunnskóli Djúpárhrepps.

Byggðasamlagið Oddi starfar í umboði sveitarstjórna Rangárþings ytra og Ásahrepps. Fræðslunefnd fjallar um málefni skóla í sveitarfélaginu og eiga foreldrar og kennarar fulltrúa í nefndinni.

Á Heklukoti er fjöldi barna um 85 á hverju skólaári og fjöldi starfsfólks um 30 í breytilegu starfshlutfalli. Leikskólinn er staðsettur við Útskála 1-3 á Hellu.

Leikskólanum er skipt í fimm aldursskiptar deildar en fjöldi barna í árgangi ræður því hvar best er að hafa hann hverju sinni. Skólaárið 2022-2023 er Hrafnakot (gula húsið) fyrir yngstu börnin og geta þau byrjað þar 12-18 mánaða gömul. Lundakot (hvíta húsið) er fyrir börn 2-3 ára. Og í bláa húsinu er Spóakot fyrir börn 3-4 ára, Lóukot er fyrir börn 4-5 ára og Uglukot er fyrir börn 5-6 ára. Aldur á deildum er þó breytilegur milli ára og fer eftir stærðum árganga hverju sinni.

Leikskólinn er opinn frá 7:45-16:15 og getur dvalartími barnanna lengstur verið 8 1/2 klukkustund.