Dymbilvikan
22 Mar 2023
Kæru foreldrar!
Nú styttist í dymbilvikuna, sem telur 3 virka daga, og gott væri að vita hvort einhver börn taki frí þá viku eða einhverja daga. Þetta biðjum við um til að koma í veg fyrir matarsóun, svo það sé ekki verið að elda fyrir öll börnin á leikskólanum ef þau mæta svo ekki öll.
Eins og flestir vita er grunnskólinn lokaður í dymbilvikunni og því eingöngu verið að elda fyrir okkur á leikskólanum.
Vinsamlegast sendið upplýsingar um frítöku á netfangið heklukot@heklukot.is
Með fyrirfram þökkum,
stýrurnar og mötuneytisdrottningarnar