news

Fullorðnir opni hliðin eingöngu!

13 Apr 2023

Kæru foreldrar!

Af gefnu tilefni langar okkur að biðja ykkur um að árétta við börnin að fullorðnir opni og loki hliðunum á leikskólanum okkar. Borið hefur á því að þau séu að reyna að opna hliðin í útiveru og því mikilvægt að allir séu samtaka um að hliðin séu einungis opnuð af fullorðnum svo þau fái sömu skilaboð frá öllum, bæði okkur hér á leikskólanum og ykkur foreldrum. Það er erfitt fyrir þau að gera greinarmun á því að stundum megi þau opna hliðin og stundum ekki, einfaldast að fullorðnir opni þau bara alltaf.

Endilega hjálpumst að með þetta atriði eins og svo mörg önnur þegar kemur að öryggi barnanna okkar

Bestu kveðjur,

Rósa Hlín og Inga