Vorhátíð foreldrafélags Heklukots
11 maí 2023
Kæru foreldrar leikskólabarna á Heklukoti!
Vorhátíð foreldrafélags leikskólans Heklukots verður haldin þriðjudaginn 16.maí í stóra garði leikskólans og hefst hún kl. 16:15. Í boði er ýmislegt skemmtilegt, s.s. andlitsmálning, pylsur, safi, ís og svo koma Dídí og Benedikt búálfur í heimsókn. Hvetjum alla foreldra leikskólabarna til að mæta og hafa gaman saman.
Bestu vorkveðjur,
Foreldrafélag leikskólans Heklukots