news

Ýmislegt vegna lokunar !

04 Júl 2023

Kæru foreldrar!

Nú er runninn upp síðasti dagur leikskólans fyrir sumarlokun. Við viljum ítreka að nauðsynlegt er að taka öll föt barnanna með heim í dag, bæði útiföt og aukaföt úr körfum.



Enn eru tilvik af streptókokka-sýkingum að koma upp og hvetjum við foreldra til að vera vakandi fyrir einkennum hjá börnunum en þau geta þó verið lúmsk og mismikil.



Nú verða smá breytingar á starfsmannahópnum þegar hún Svala okkar heldur á vit nýrra ævintýrra og kveður okkur eftir frábæra samveru. Við þökkum henni fyrir vel unnin störf og vonum við að henni farnist vel á nýjum slóðumHennar verður sárt saknað. Eins er Magda farin frá okkur og þökkum við henni mjög gott samstarf þó stutt væri.



Við vonum að allir muni eiga frábært sumarfrí og komi ferskir og endurnærðir til baka, tilbúnir í komandi vetur og allt það skemmtilega sem hann býður upp á.



Njótið sumarsins og samveru með ykkar besta fólki, sjáumst hress í ágúst



Kærar sumarkveðjur,
stýrurnar á Heklukoti,
Inga og Rósa Hlín