Leikskólastjóri Heklukots er Ingigerður Stefánsdóttir. Hún hefur mikla reynslu sem leikskólastjóri eða 32 ár samtals. Ingigerður lærði leikskólakennarann í Kennaraháskólanum í Stokkhólmi og hefur einnig lokið Diplómanámi í stjórnun frá Kennaraháskóla Íslands. Inga, eins og hún er alltaf kölluð, hóf störf á Heklukoti þann 1.júlí 2021. Áður hafði hún verið leikskólastjóri í Snæfellsbæ og einnig á Ísafirði. |